27.3.2008 | 15:41
Þetta finnst mér æði
ég vona að þeir haldi þessu áfram til 8 í kvöld... og byrji aftur í fyrramálið... húrra fyrir þeim
Vörubílstjórar stöðva umferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Minns kíkir oft hér
Heilsófríks
- World Class æfingastöðin
- Fitnesssíða
Stuðboltar
- Uppáhaldspíurnar mínar stuð að eilífu!!!!
Athugasemdir
Segir manneskjan sem býr í Kópavogi...
Ég bý í Mosó, og finnst þetta þar af leiðandi ekki jafn sniðugt. Eða fyndist þér það ef þeir stífluðu allar leiðir inn í þinn heimabæ?
Anna Margrét, 27.3.2008 kl. 15:48
Þarna eru þeir með þessu móti að stofna hugsanlegum lífum í hættu þar sem sjúkrabílar, lögregla og slökkvilið þurfa að geta komist þarna í gegn ef eitthvað kemur uppá.
Þetta er þessvegna mjög vanhugsað framtak!
Sölvi (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 15:54
Fólk kemur of seint að sækja börnin sín á leikskóla.Börn missa af ýmsum tómstundum.Sjúkrabílar tefjast,slökkvilið og lögregla líka.Hvað er æðislegt við þetta?Slysahættan?Vanhugsuð mótmæli og engum til sóma
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 15:59
Þetta er það sem er alltaf verið að tala um. Þessa linkind í okkur blessuðum Íslendingunum. Allir að kvarta og nöldra hver í sínu horni og segja að það ætti nú einhver að gera eitthvað, mótmæla eða eitthvað..... og svo þegar það er gert þá vælir fólk úr sér augun vegna þess að það fer allt á hliðinna við svona mótmæli (tilganginum náð) og kemst ekki heim til sín á sínum venjulega tíma.
Ótrúlegt.
Ég er mjög ánægður með þetta framtak.
Rikki (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 16:13
Sölvi! Eru þeir að stofna hugsanlegum lífum í hættu? Hvernig skilgreinir þú "hugsanlegt líf"? Þú hlýtur að eiga við að þeir stofni hugsanlega lífum í hættu! Kannski töluvert vanhugsuð athugasemd hjá þér!
Sennah (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 16:43
hahaha
Góður Sennah.
Vésteinn (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 16:51
þeir voru nú líka á leiðinni í kópavoginn en ég reyndar rétt slapp þar sem þeir voru nýkomnir fyrir aftan mig og blokkuðu þar af leiðandi alla sem voru á leið í kópavoginn! heppin ég
ég skil ekki alveg afhverju fólk er svona rosalega á móti þessum mótmælum. mér finnst frábært að einhverjir láta ekki bjóða sér svona fávitalega verðlagningu á bensíni og láti í sér heyra.
mér finnst þetta eitt besta framtak sem ég hef séð í langan tíma og styð þau 100% ef ég ætti trukk þá myndi ég slást í hópinn með þeim..
næst myndi ég vilja sjá mótmæli í bónus,hagkaup og nóatún vegna of hárra verðlagningar á matvælum. ættum öll að taka okkur til með kylfur og rústa búðunum, ræna mat og lifa vel eftir því.
Kolbrún Hanna Jónasdóttir, 27.3.2008 kl. 18:07
Þokkalega sammála Vésteini og Kollu. Hvað með það þó að það fari eitthvað aðeins úr skorðum einn, tvo daga. Hvað er fólk að væla yfir því? ÞAð var nú bara mikið að einhver gerir eitthvað loksins. Hvernig væri bara að slaka aðeins á í smá tíma? Það er ekki eins og heimurinn farist þó að einhver komi of seint eitthvert einu sinni Kommon
Mér fannst það nú bara gaman að því að sjá bílalestirnar í hádeginu í dag, stemmning bara. Enda sat ég bara á meðan og slappaði :)HCA (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 02:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.